Ráðstöfun



Frysting
Söltun
Ferskfiskur
Fiskimjöl
Fiskeldi
Gæðaeftirlit
Rannsóknir



Aðalsíða
Senda póst


FISKVINNSLURANNSÓKNIR

Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins (Rf) var stofnuð árið 1934 og hefur alla tíð annast rannsóknir og mælingar fyrir sjávarútveginn, aðallega ýmsar greinar fiskvinnslunnar en stofnunin tekur einnig að sér verkefni fyrir annan matvælaiðnað á landinu.

Rf tekur þátt í umfangsmiklum rannsóknum í samstarfi við skyldar stofnanir í nágrannalöndunum og í Evrópusambandinu. Hún er einnig í nánu samstarfi við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, því að sérfræðingar Rf taka þátt í rannsóknum og kennslu er tengjast matvælafræði og sjávarútvegsfræðum. Stofnunin annast einnig ráðgjöf fyrir fiskiðnaðinn og heldur námskeið á ýmsum sviðum fyrir fólk er starfar í sjávarútvegi.

Þjónustusvið Rf á Ísafirði, Akureyri og í Vestmannaeyjum hafa nú verið lögð niður en í stað þeirra stofnuð fyrirtæki um þjónustumælingar á sömu stöðum og annast þau greiningar á efnafræðilegum og örverufræðilegum þáttum sjávarfangs. Þjónustusvið Rf í Reykjavík er stoðdeild við rannsóknir en í Neskaupstað annast útibú Rf einkum þjónustumælingar við fiskimjölsiðnaðinn. Aðalgreiningaraðferðir Rf hafa hlotið vottun samkvæmt EN 45001 staðlinum.

Rannsóknasvið Rf vinnur að tæknilegum lausnum fyrir nýtingu áður vannýttra auðlinda sjávar, þróar aðferðir og annast greiningar er varða heilnæmi sjávarafurða og gæðamál og vinnur að vöruþróun fyrir fiskiðnaðinn. Rannsóknir í umhverfismálum hafa einnig verið gerðar í samstarfi við nokkur frystihús.

Á Rf starfa um 60 manns, flestir matvælafræðingar, efnafræðingar, örverufræðingar eða verkfræðingar. Rf hefur skrifstofur og rannsóknastofur í Reykjavík, en einnig starfsemi í Neskaupstað, Vestmannaeyjum og á Akureyri, Ísafirði.og Sauðárkróki.

Nánari upplýsingar um Rf er að finna á heimasíðu stofnunarinnar


Uppfært í ágúst 2006


fisheries@fisheries.is

Sjávarútvegsráðuneytið