Ráðstöfun



Frysting
Söltun
Ferskfiskur
Fiskimjöl
Fiskeldi
Gæðaeftirlit
Rannsóknir



Aðalsíða
Senda póst


FISKELDI - VINNSLA OG MARKAÐIR

Fiskeldisafurðir eru ríflega 1% af verðmæti útfluttra sjávarafurða og aðallega eru fluttar út afurðir lax, bleikju og þorsks.

Árið 2005 voru flutt út um 4,200 tonn af laxi, 400 tonn af bleikju og 400 tonn af öðrum tegundum, aðallega þorski.

Egg Atlantshafslaxins eru nú flutt út frá Íslandi allt árið um kring og seld til fiskeldisfyrirtækja. Eftirspurnin er mikil og byggist þessi árangur á kynbótum stofnsins. Laxaegg eru aðallega seld fiskeldisstöðvum í Írlandi og Suður-Ameríku. Útflutningur á lúðuseiðum er einnig vaxandi.

Lax- og silungsafurðir eru fluttar út ferskar eða frystar og ýmist sem heill fiskur eða flök. Töluvert er einnig um útflutning á reyktum laxaflökum. Nútímatækni í flutningum gerir það mögulegt að flytja ferskan fisk frá Íslandi til allra helstu ferskfiskmarkaðanna. Kaupendurnir eru smásöluverslanir og veitingahús í Evrópu og Norður-Ameríku sem kunna að meta stöðug aðföng og mikil gæði.

Vinnsla
Þegar búið er að slægja og þvo fiskinn er hann stærðarflokkaður og honum pakkað með ís í kassa úr einangrunarplasti. Flökunum er pakkað á svipaðan hátt en síðan eru vörurnar fluttar flugleiðis á markaðina.

Markaðir
Markaðir fyrir íslenskan eldisfisk eru í Evrópu og Bandaríkjunum. Ferskur heill fiskur og flök fara jöfnum höndum vestur um haf og til Evrópu, fryst flök fara mest á Evrópumarkað en reyktur lax er aðallega seldur til Bandaríkjanna. Árið 2005 skiptist útflutningsverðmæti eldisafurða þannig að til Evrópu fóru 80% útflutnings en til Bandaríkjanna 20%.

Uppfært í ágúst 2006


fisheries@fisheries.is

Sjávarútvegsráðuneytið