Ráðstöfun
|
FERSKUR FISKUR - VINNSLA OG MARKAÐIRFerskar og ísaðar fiskafurðir hafa undanfarin ár verið um 15% af verðmæti útfluttra sjávarafurða en náðu 18% árið 2005. Útflutningurinn byggist á sölu ferskra flaka sem mest eru flutt út flugleiðis svo og sölu á heilum ísuðum fiski sem fluttur er sjóleiðis. Ferskur fiskur er kældur í öllum flutningum. Nútímatækni í flutningum gerir það mögulegt að flytja ferskan fisk frá Íslandi til allra helstu ferskfiskmarkaða. Kaupendurnir eru smásöluverslanir og veitingahús í Evrópu og Norður-Ameríku sem kunna að meta stöðugleikann í aðföngum, ferskleikann og aðra mikilvæga gæðaþætti. Að magninu til er útflutningurinn mest heill eða slægður fiskur í ís (ísfiskur) en á undanförnum árum hefur salan á ferskum flökum sem flutt eru út með flugi aukist mikið. Verðmæti útflutnings ferskra flaka er orðið mun meira á síðustu árum en verðmæti ísfiskútflutningsins. Aðallega eru það afurðir þorsks, ýsu, karfa, steinbíts, ufsa og skarkola sem fluttar eru út ferskar. Ferskfiskvinnsla
Markaðir
|