Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Grálúða
Flatfiskur
Steinbítur
Síld
Loðna
Kolmunni
Humar
Rækja
Hörpudiskur
Aðrir stofnar


Hvalir




Aðalsíða
Senda póst


STEINBÍTUR
Anarhichas lupus

Steinbítur er algengur allt í kringum landið en mest er af honum úti fyrir Vestfjörðum í febrúar til apríl og undan Suðausturlandi. Steinbítur er botnfiskur og lifir mest á ýmiss konar skeldýrum og krabbadýrum en einnig á smáfiski. Hann lifir á 10-300 m dýpi en heldur sig þó mest á 40-180 m dýpi. Hann er oftast 10-15 ára og 60-85 cm á lengd er hann veiðist. Merkingar á steinbít hér við land benda til að hann þvælist töluvert um Íslandsmið.

Steinbítur er veiddur á línu og í botnvörpu. Helstu upplýsingar um stofnstærð eru stofnvísitölur úr togararalli í mars ár hvert en stofnstærð sem slík hefur ekki verið metin.

Steinbítsafli hefur verið á bilinu 8.000-18.000 tonn á ári síðustu þrjá áratugina, en að meðaltali 13.000 tonn. Aflinn varð 16.400 tonn á Íslandsmiðum árið 2006. Heildaraflamark var fyrst sett á fiskveiðiárið 1996/97 en oft hefur aflinn orðið nokkuð umfram aflamark og ráðgjöf.. Vitað er að sókn í steinbít hefur um árabil verið of mikil og gætti þess einkum á árunum 1989-1995 en einnig síðustu tvö árin. Í samræmi við það mælir Hafrannsóknastofnun með að aflinn fari ekki yfir 11.000 tonn á fiskveiðiárinu 2007/2008 en heildaraflamarkið sem sett hefur verið er 12.500 tonn.


Línuritið sýnir þróun steinbítsaflans síðan 2001 ásamt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og heildaraflamarki. 

Rauðu súlurnar tákna ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar, bláu súlurnar heildaraflamark og grænu súlurnar ársaflann. (Allar tölur eru í þúsundum tonna).

 

 

Tískuvara
Steinbíts- og hlýraroð hefur verið notað til að búa til nýtískulega muni undanfarin ár. Roðinu svipar til slönguskinns að eiginleikum. Fiskurinn er handroðflettur og roðið sútað með sérstakri tækni. Sútað roð er aðallega notað í belti, veski og litla skrautmuni.


Uppfært í júlí 2007

fisheries@fisheries.is

Sjávarútvegsráðuneytið