NYTJASTOFNAR Á ÍSLANDSMIÐUM
FISKUR, SKELFISKUR OG KRABBADÝR
Hinar lifandi auðlindir sjávar á miðunum allt í kringum landið eru kjölfestan í íslensku efnahagslífi og útflutningur sjávarafurða hefur lengst af verið grundvöllur viðskipta okkar við útlönd.
Sjávarafurðir voru um 51% af heildarverðmæti vöruútflutnings
árið 2006.
Heildarafli íslenska flotans var um 1,3 milljónir tonna árið 2006 og voru Íslendingar
þá líklega nálægt 15. sæti meðal mestu fiskveiðiþjóða heims.
Fiskveiðunum má skipta í veiðar á botnfiski, flatfiski, uppsjávarfiski og
skelfiski, þ.e. krabbadýrum og lindýrum. Botnfiskaflinn árið
2006 var um 38% af heildaraflanum hvað magn varðar en flatfiskaflinn 2%. Afli uppsjávarfisks, aðallega loðnu, síldar og kolmunna, var um
60% en afli rækju, humars og kúfisks var innan við 1% af heildaraflanum. Þegar horft er til aflaverðmætis eru hlutföllin
önnur. Botnfiskaflinn var 76% af verðmætinu, flatfiskaflinn 7%, afli uppsjávarfisks var
16% verðmætis og rækja, humar og kúfiskur voru 1% aflaverðmætisins.
Þorskurinn er mikilvægastur allra nytjastofna á Íslandsmiðum. Árið
2006 voru þorskafurðir um 39% af verðmæti útfluttra sjávarafurða.
Grundvöllur ábatasamra fiskveiða eru hin gjöfulu fiskimið landsins en afrakstursgeta þeirra er háð sterkum hafstraumum undan ströndum landsins. Á mótum straumanna skapast hagstæð skilyrði hitastigs og þar er gnótt næringarefna fyrir lífið í sjónum svo að varla gerist betra á norðlægum slóðum.
Veljið eftirfarandi blaðsíður fyrir meiri upplýsingar um mikilvæga nytjastofna sjávar en þar er fjallað um líffræði þeirra, umhverfi, stofnmat, ráðgjöf um aflahámark, heildaraflamark og aflann undanfarin ár.
HVALIR
Hvalir eru mikilvægir í lífkerfi hafsins og allar rannsóknir benda til að þá megi nýta á sjálfbæran hátt eins og aðrar auðlindir
sjávar.
Hvalveiðar voru stundaðar á Íslandsmiðum í meira en eina öld en þær voru stöðvaðar í lok vertíðar sumarið 1989.
Hvalveiðar í vísindaskyni hófust 2003 og lýkur því verkefni 2007.
Sjávarútvegsráðherra ákvað hinn 17. okt. 2006 heimildir til
hvalveiða fiskveiðiárið 2006/2007. Þessi ákvörðun er tekin
á grunni stefnu stjórnvalda um sjálfbæra nýtingu lifandi auðlinda
hafsins og með hliðsjón af ályktun Alþingis um hvalveiðar frá 10.
mars 1999.
Veljið eftirfarandi blaðsíðu til að nálgast upplýsingar um stofnmat og sögulega þróun hvalveiða.
Uppfært í júlí 2007
|