Þorskur
Ýsa
Ufsi
Karfi
Grálúða
Flatfiskur
Steinbítur
Síld
Loðna
Kolmunni
Humar
Rækja
Hörpudiskur
Aðrir stofnar


Hvalir




Aðalsíða
Senda póst


HUMAR
Nephrops norvegicus

Humar er útbreiddur í norðaustur-Atlantshafi. Á Íslandsmiðum finnst hann undan suður-, suðaustur- og suðvesturströndinni og aðallega á 110-270 m dýpi og við 6-9°C sjávarhita. Humarinn lifir á mjúkum leirbotni eða sandi og grefur sér þar löng göng og lifir á ýmsum smáum botndýrum.

Humarvertíðin hefur lengi staðið frá 15. maí til ágústloka en nú eru veiðar leyfðar til septemberloka. Humar er veiddur í humarvörpu hér við land.

Árlegur humarafli á Íslandsmiðum hefur verið 1.200-4.000 tonn síðustu þrjá áratugina en var 1.875 tonn árið 2006. Veiðistofninn, sem er 6 ára humar og eldri, er talinn vera um 16.000 tonn. Nýliðun í veiðistofn humars hefur batnað að undanförnu og afli á sóknareiningu aukist, einkum á suðausturmiðunum en minni bata er að sjá á suðvesturmiðum. Fiskifræðingar mæla með að varúðar sé gætt í nýtingu humarstofnsins meðan smár humar er ríkjandi í aflanum.

Heildaraflamark fyrir fiskveiðiárið 2007/2008 er 1.900 tonn og er það í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.


Línuritið sýnir þróun humarveiða síðan 2001 ásamt aflamarki sem Hafrannsóknastofnun mælti með og heildaraflamarkinu sem sett var sömu ár. 

Rauðu súlurnar tákna ráðleggingar Hafrannsóknastofnunar, bláu súlurnar heildaraflamark og grænu súlurnar ársaflann. (Allar tölur eru í þúsundum tonna).

 

 

Verðmætar afurðir
Humar er verðmætasta tegund sjávarafurða af Íslandsmiðum ef reiknað er sem verð á kg útfluttra afurða. Humar er fluttur út heilfrystur eða sem frystir halar í skel. Stór humar er verðmætastur á markaði. Humar er mest fluttur út til ýmissa Evrópulanda en smávegis einnig til Bandaríkjanna og Japans.


Uppfært í júlí 2007

fisheries@fisheries.is

Sjávarútvegsráðuneytið