Þorskur Ýsa Ufsi Karfi Grálúða Flatfiskur Steinbítur Síld Loðna Kolmunni Humar Rækja Hörpudiskur Aðrir stofnar |
AÐRIR NYTJASTOFNAR
Fleiri en sextíu stofnar lífvera á Íslandsmiðum eru mikilvægir í sjávarútvegi landsmanna en þar er að sjálfsögðu mikill fjöldi annarra lífvera sem margfalda hinn líffræðilega fjölbreytileika vistkerfisins. Sjórinn iðar af lífi þrátt fyrir hina norðlægu breiddargráðu og svalt umhverfið. Gerð er grein fyrir mikilvægustu stofnum á blaðsíðum merktum þeim í þessum kafla en hér á eftir fylgir listi yfir stofna sem ekki er lýst neitt nánar en eru þó nýttir og skipta sumir miklu máli. Flesta þessara stofna rannsakar Hafrannsóknastofnun árlega. Sumir hafa verið nýttir í áratugi og eru enn nýttir á hefðbundinn hátt með litlum breytingum í afla en aðrir hafa aðeins verið veiddir að ráði í nokkur ár.
Uppfært í júlí 2007
|