Aðalsíða
Senda póst

ÞJÓÐARÉTTUR OG ALÞJÓÐLEGT SAMSTARF

Hér fer á eftir listi yfir alþjóðlega samninga og samkomulög sem Ísland er aðili að og varða sjávarútvegsmál. Listinn er ekki tæmandi og er ekki hugsaður sem opinbert skjal

Ítarlegan lista má nálgast á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.

Listi yfir samninga sem Ísland er aðili að og varða auðlindir og umhverfismál.

Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna frá 10. des. 1982. Ísland fullgilti samninginn árið 1985 og hann öðlaðist gildi 1994.

Samningur um framkvæmd XI. hluta hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna frá 10. des. 1982 (29. júlí 1994). Samningurinn var undirritaður 1994 og öðlaðist gildi hvað Ísland varðar árið 1995.

Samningur um framkvæmd ákvæða hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna frá 10. des. 1982 um verndun deilistofna og víðförulla fiskistofna og stjórn veiða úr þeim (4. ágúst 1995). Ísland fullgilti samninginn árið 1997 og hann öðlaðist gildi í desember 2001 er 30 ríki höfðu fullgilt hann.

Nánari upplýsingar um Hafréttarsamninginn og Úthafsveiðisamninginn er að finna á heimasíðu UNCLOS

Samningur um Alþjóðahafrannsóknaráðið (12. sept. 1964). Ísland fullgilti samninginn árið 1964 og öðlaðist hann gildi 1968 en bókun frá 1970 öðlaðist gildi 1975.

Nánari upplýsingar um Alþjóðahafrannsóknaráðið er að finna á heimasíðu ICES

Samningur um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðvestur-Atlantshafi (24. okt. 1978). Ísland fullgilti samninginn árið 1978 og hann öðlaðist gildi 1979.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu NAFO

Samningur um framtíðarsamvinnu ríkja varðandi fiskveiðar á Norðaustur-Atlantshafi (18. nóv. 1980). Ísland fullgilti samninginn 1981 og hann öðlaðist gildi 1982.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu NEAFC

Samningur um samvinnu varðandi rannsóknir, verndun og stjórnun sjávarspendýra í Norður-Atlantshafi (9. apríl 1992). Samningurinn öðlaðist gildi 1992.

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu NAMMCO

Samningur um Svalbarða (9. feb. 1920). Var fullgiltur að Íslands hálfu árið 1994 og öðlaðist gildi þá.

Samningur um reglur um fiskveiðar í Norður-Atlantshafi (1. júní 1967). Ísland fullgilti samninginn árið 1969 og hann öðlaðist gildi 1976.

Samkomulag á milli Íslands og Noregs um fiskveiði- og landgrunnsmál (28. maí 1980). Öðlaðist gildi árið 1980 og viðbótarbókun frá 1997 öðlaðist gildi árið 1998.

Samningur um verndun lax í Norður-Atlantshafi (2. mars 1982). Fullgiltur að Íslands hálfu árið 1982 og öðlaðist gildi 1983.

Fiskveiðisamningur við Noreg (8. júní 1984). Öðlaðist gildi árið 1984.

Samningur í formi erindaskipta milli lýðveldisins Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu um fiskveiðimál (2. maí 1992). Öðlaðist gildi 1992.

Bókun um verndun, skynsamlega nýtingu og stjórnun veiða á norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi (6. maí 1996).

Samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2000 (2. feb. 2000). Kom til framkvæmda.

Samningur milli Íslands, Grænlands/Danmerkur og Noregs um loðnustofninn á hafsvæðinu milli Grænlands, Íslands og Jan Mayen (18. júní 1998). Kom til framkvæmda.

Samningur um gagnkvæmar veiðar í fiskveiðilögsögu Íslands og Grænlands (18. júní 1998). Kom til framkvæmda.

Tvíhliða samkomulag milli Íslands og Noregs (18. júní 1998). (Samkomulagið er í tengslum við loðnusamninginn frá sama degi). Kom til framkvæmda.

Sameiginleg bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2000 og bókun um sérstakar verndunarráðstafanir með tilliti til stjórnunar veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2000 (20. okt. 1999). Kom til framkvæmda.

Samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands, efnahagslögsögu Noregs og fiskveiðilögsögu Jan Mayen á árinu 2000. Kom til framkvæmda.

Samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2000. Kom til framkvæmda.

Samningur milli ríkisstjórnar Íslands, ríkisstjórnar Noregs og ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs (15. maí 1999). Samningurinn öðlaðist gildi sama ár.

Bókun ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Noregs samkvæmt samningnum milli ríkisstjórnar Íslands, ríkisstjórnar Noregs og ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs (15. maí 1999). Bókunin tók gildi um leið og ofangreindur samningur.

Bókun ríkisstjórnar Íslands og ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins samkvæmt samningnum milli ríkisstjórnar Íslands, ríkisstjórnar Noregs og ríkisstjórnar Rússneska sambandsríkisins um tiltekna þætti í samstarfi á sviði sjávarútvegs (15. maí 1999). Bókunin tók gildi um leið og ofangreindur samningur.

Samningur um fiskveiðimál og lífríki hafsins milli lýðveldisins Íslands og Efnahagsbandalags Evrópu (15. des. 1993). Öðlaðist gildi 1993.

Alþjóðasamningur um íhlutun á úthafinu þegar óhöpp koma fyrir sem valda eða geta valdið olíumengun (29. nóv. 1969). Staðfestur árið 1980 og öðlaðist gildi að því er Ísland varðar 1980.

Alþjóðasamningur um varnir gegn mengun hafsins vegna losunar úrgangsefna og annarra efna í það (1. jan. 1972). Staðfestur 1973 og öðlaðist gildi 1975.

Alþjóðasamningur um varnir gegn mengun frá skipum (2. nóv. 1973). Öðlaðist gildi hvað Ísland varðar 1985, og viðaukar 1985, 1989, 1992.

Samningur um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða Evrópu (19. sept. 1979). Fullgiltur 1993 og öðlaðist gildi hvað Ísland varðar sama ár.

Samningur um líffræðilega fjölbreytni (5. júní 1992). Fullgiltur 1994 og öðlaðist gildi hvað Ísland varðar sama ár.

Samningur um verndun Norðaustur-Atlantshafsins -OSPAR (22. sept. 1992). Fullgiltur 1997 og öðlaðist gildi 1998

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu OSPAR

Samningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um samvinnu í baráttu gegn mengun sjávar af völdum olíu og annarra skaðlegra efna (29. mars 1993). Fullgiltur 1995 og öðlaðist gildi hvað Ísland varðar 1998.

Valfrjálst samkomulag
Siðareglur FAO um ábyrgð í fiskimálum (31. okt. 1995).

Siðareglurnar í heild á íslensku

Siðareglurnar á ensku


fisheries@fisheries.is

Sjávarútvegsráðuneytið