Ávarp



Aðalsíða
E-mail

ÁVARP SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA

Einar K. Guðfinnsson
sjávarútvegsráðherra

Lengi voru auðlindir hafsins taldar ótæmandi gjöf náttúrunnar en Íslendingar áttuðu sig á því í byrjun síðustu aldar að svo var ekki og hófst þá barátta þeirra fyrir því að mega einir nýta fiskistofnana á Íslandsmiðum. Sú barátta stóð í þrjá aldarfjórðunga og lauk með fullum sigri en síðan hafa Íslendingar orðið að laga veiðar sínar að afrakstursgetu fiskistofnanna svo að segja má að saga þjóðarinnar alla þessa öld tengist skynsamlegri veiðistjórn.

Kröfur samtímans til sjávarútvegs um allan heim eru fólgnar í sjálfbærri nýtingu auðlinda og varúðarnálgun við veiðarnar ásamt ábyrgri meðferð afla, tryggum gæðum og heilnæmi afurða. Íslensk stjórnvöld og íslenskur sjávarútvegur gera einnig þessar kröfur en á eigin forsendum því að ábyrg nýting og sjálfbær þróun í sjávarútvegi er honum og þjóðinni allri lífsnauðsynleg ekki aðeins í hinum líffræðilega skilningi þessara orða heldur ekki síður hinum efnahagslega.

Sjálfbær auðlindanýting er grundvallaratriði í allri alþjóðlegri umræðu um sjávarútvegsmál og nýtingu náttúruauðlinda. Fiskkaupendur láta sig nú orðið miklu varða hvort þeir kaupi fisk sem veiddur er með sjálfbærum og ábyrgum hætti. Krafan um þetta verður stöðugt háværari og algengari. Fiskútflytjendur eru því æ oftar knúðir svara um stöðu fiskstofna, fiskveiðiráðgjöfina, afstöðu stjórnvalda og þar fram eftir götunum.

Í byrjun ágúst 2007 var gefin út umhverfisyfirlýsing um íslenskar fiskveiðar. Með henni er gengið út frá því að hugtakið “Íslensk fiskveiðistjórnun” hafi jákvætt gildi í hugum þeirra sem kynnt hafa sér sjávarútveg. Ábyrgir aðilar innan sjávarútvegsins, sem fást við stjórnsýslu, rannsóknir og starfa innan greinarinnar lýsa þar hvernig íslensk fiskveiðistjórnun virkar. Yfirlýsingin er undirbúningur vottunarferlis og fyrst og fremst gerð í þeim tilgangi að árétta að við Íslendingar stundum ábyrgar veiðar. Við þessa vinnu er tekið mið af leiðbeiningarreglum FAO sem samþykktar voru á vettvangi COFI árið 2005.

Upplýsingaveita ráðuneytisins fjallar um mörg mikilvæg atriði er tengjast þeirri stefnu þess að sýna ábyrgð í nýtingu nytjastofna með öflugum rannsóknum og úthlutun aflaheimilda á grundvelli vísindalegra ráðlegginga. Hún á að skýra landsmönnum og áhugafólki víða um heim frá því hvernig fiskveiðistjórn okkar hefur þróast og er nú háttað. Hún fjallar um þjóðarétt og alþjóðlegt samstarf í fiskimálum, lýsir mikilvægum fisktegundum, ástandi einstakra stofna, veiðum og veiðarfærum, vinnslu sjávarafurða og mörkuðum. Upplýsingaveitan fjallar einnig um rannsóknir á íslensku hafsvæði og íslenskum sjávarafurðum sem leitt hafa í ljós að sjórinn er hreinn og afurðirnar heilnæmar en jafnframt er ljóst að Íslendingar verða að halda vöku sinni og taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi er miðar að því að koma í veg fyrir frekari mengun sjávar víða um heim.

Sjávarútvegsráðuneytið vonast til að þessar upplýsingar komi öllum þeim að gagni sem láta sig miklu varða ábyrgð okkar í sjávarútvegsmálum.

Reykjavík, mars 2008
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra


fisheries@fisheries.is

Sjávarútvegsráðuneytið